fimmtudagur, 15. janúar 2026

Hraðbraut við fjöruna í Kópavogi - Kársnesstígur

Í nútímaþjóðfélagi er farið að leggja meiri og meiri vigt á að hafa góð svæði fyrir útivist. En það er ljóst við lestur framlagðra gagna bæjarstjórnar Kópavogs um þennan stíg að hann skal leggja meðfram fjörunni og vera sem beinastur og greiðastur svo hægt sé að komast sem hraðast yfir. Guð forði okkur frá því að á honum séu beygjur. Því einn af ókostum í öðrum möguleikum fyrir stíginn eru að mögulega séu 3-4 beygjur á öðrum leiðum og því dæmdar ómögulegar. 

Ekki bara fallegt fólk í Spandex 
Það er ástæða fyrir því þessi stígur er ekki kallaður hjólastígur, hún er sú að ljóst er að í framtíðinni verður mesta umferðin um þessa stíga, vélknúin tæki hvort sem það er rafmagnsknúið eða bensín, ekki bara fallegt fólk á reiðhjólum í spandex göllum. Því miður fyrir þetta skemmtilega útivistarsvæði, verður þetta hraðbraut og ekkert annað. Hraðbraut fyrir öll þau vélknúnu farartæki sem, samkvæmt lögum, mega keyra eftir þessum samgöngustíg. Það er markmið Borgarlínu að auka umferð um þessa samgöngustíga og þá má gera ráð fyrir að þessi vélknúnu hjól og rafhlaupahjól sem mesta aukningin felst í. Það væri meira öryggi í því að leggja sérmerktar brautir við umferðargötum fyrir þessi farartæki. 

Mín einlæga von 
Það virðist ekki breyta neinu hvað fólki á Kársnesinu finnst! Ekkert tillit er tekið til þess að mörgum íbúum á Kársnesi þykir vænt um svæðið og vilja njóta útiverunar, nærveruna við fuglalífið og náttúruna. Ekkert tillit er tekið til þess verðmætis sem felst í því. Ekki nefnt einu orði að þetta er skilgreint sem útivistarsvæði. Á fundi bæjarstjórnar mátti heyra á máli formanns skipulagsnefndar að tillagan væri meitluð í stein. Engu að síður er það mín einlæga von að bæjaryfirvöld sjái að það eru aðrir möguleikar í stöðunni og að þessi vinsæla gönguleið verði áfram notuð til náttúru göngu og yndis. En ekki sem hraðbraut. 

 Greinin birtist fyrst á visir.is þann 15 janúar 2026   https://www.visir.is/g/20262829580d/hradbraut-vid-fjoruna-i-kopavogi-karsnesstigur

þriðjudagur, 13. febrúar 2024

Hita­veitu fyrir Kópa­vog

Í desember 1964 var stofnuð Hitaveita Kópavogs. Nú tæpum 60 árum seinna er tímabært að setja hana í gang að nýju og byrja að leita að heitu vatni, því oft var þörf en nú er nauðsyn. Undanfarin ár hefur það gerst oftar en ekki að fólk á höfuðborgarsvæðinu hefur verið beðið um spara heita vatnið og sundlaugar hafa þurft að loka vegna skorts á heitu vatni. Það er ljóst að það er hægt að finna heitt vatn víða í landi Kópavogs. Með því að byrja að huga að þessum málum sem fyrst er hægt að vinna að hitaveitu fyrir Kópavog á hagkvæman hátt og skoða vel hvaða svæði henta til notkunar. Sjálfur myndi ég byrja á að leita í landi Kópavogs rétt við Smiðjuveg og Kjarrhólma áður en við förum upp að Lækjarbotnum og þar á austursvæði Kópavogs landsins. Á undanförnum árum hefur hér á höfuðborgarsvæðinu þurft að loka sundlaugum þar sem á álagstímum hefur Orkuveita Reykjavíkur einfaldlega brugðist í þessum málum. Þannig að þörfin fyrir heitt vatn er mikil hér á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt hefur verð á heitu vatni, til sérstakra nota, hækkað um rúmlega 25% á síðustu fjórum árum, þannig að það má engan tíma missa. Bæjarstjórn Kópavogs getur nú þegar sett í gang vinnu við undirbúning og með markvissri vinnu gætum við eignast okkar eigin hitaveitu á næstu árum sem gæti veitt Kópavogsbúum og jafnvel fleirum ánægju og vellíðan um ókomna tíð. Fyrir þau sem hafa áhuga á að skoða heitu svæðin í landi Kópavogs þá er auðvelt að skoða heimasíðu Orkustofnunar. Kort af Íslandi | Map of Iceland Greinin birtist fyrst á visir.is þann 12 febrúar 2024 https://www.visir.is/g/20242528028d/hitaveitu-fyrir-kopavog

fimmtudagur, 30. júní 2022

Hvað má útivistarsvæði kosta?

 

Nú er búið að klára samþykkt á Arnarnesveginum bæði í Kópavogi og í Reykjavík. Ekki að ég hafi nokkra samúð með Reykvíkingum varaðandi legu vegarins á milli Kópavogs og Reykjavíkur þarna í Vatnsendahvarfinu. Því það er margbúið að fara illa með okkur í Kópavogi og færa vegastæðið langt inn í land Kópavogs og að auki búið að gjörbreyta mislægum gatnamótum á mótum Breiðholtsbrautar og gera þau ljósastýrð með miklu verra fæði en best hefði verið á kosið. Í dag er engin bæjarfulltrúi í Kópavogi eða í stjórnkerfinu á umhverfissviði sem þekkir til hvernig þessi vegur hefur þróast og man ég að þegar við vorum að gefa eftir með vegstæðið að þá var alltaf vissan fyrir því að það væri þó alltaf mislæg gatamót á móts við Breiðholtsbraut sem ætti að gera það að verkum að gott flæði væri tryggt. En svo árið 2018 skipar dýralæknirinn Sigurður Ingi dýralækni sem yfirmann Vegagerðarinnar. Það kann ekki góðri lukku að stýra að allir sem koma að því að stjórna og hafa hve mestu áhrif á samgöngur á höfuðborgarsvæðinu séu dýralæknarnir þrír og svo læknirinn í Reykjavík. Þá árið 2018 við þessa skipun mátti vita að þetta yrði ekki faglegt mat heldur Reykvískt mat. En gamli vegamálastjórinn hefði aldrei gefið þetta eftir. Öryggi og flæði hefði alltaf verið í fyrsta sæti.


Niðurstaða á vegastæði og vegamótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar


Hér er mynd af mislægum vegamótum eins og lagt var af stað með áður en dýralæknirinn skipaði dýralæknirinn sem vegamálastjóra árið 2018

En nóg um það. þetta er komið og núna er bara að hefja framkvæmd. En ef ég mætti ráða þá yrði þessi vegur settur í stokk (greitt sameiginlega af Kópavogi, Reykjavík og Vegagerðinni) og við það fengist heilmikið land sem bæði væri hægt að nota fyrir nýar byggingar og ekki síst tryggja að þarna væri frábært útivistarsvæði fyrir íbúa hvort sem væri í Kópavogi og Reykjavík.  Þarna væri auðvelt að gera sambærilegt svæði og Rútstún sem nýta má fyrir ýmsar uppákomur fyrir íbúa í hverfinu og ekki síður gera frábærar sleðabrekkur eins og er á Rútstúni. En ég hef ekki enn séð neinn setja þetta fram og geri ekki ráð fyrir því að nokkur vilji sé til þess þar sem þetta væri alltaf kostnaður og hvað má útivistarsvæði kosta?


https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022/06/29/segir_framsokn_hafa_svikid_kosningaloford_i_dag/


https://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/tillaga-ad-utfaerslu-vegamota-arnarnesvegar-og-breidholtsbrautar


https://hringbraut.frettabladid.is/frettir-pistlar/dyralaeknir-verdur-vegamalastjori/


https://eirikurjonsson.is/slatti-af-dyralaeknum/


fimmtudagur, 21. janúar 2021

Síðasta lóðin

 Núna í maí verður Kópavogur 66 ára.  Sögu Kópavogs þekkja flestir en Kópavogur byggðist hratt upp því ávalt var lóðaskortur í Reykjavík.  Nú er svo komið að það á líka við um Kópavog.  Það er engin laus lóð í Kópavogi því í dag samþykkti bæjarráð að úthluta síðustu lausu lóðinni á vef Kópvogsbæjar.  

1.2101228-Urðarhvarf 10. Umsókn um lóð undir atvinnuhúsnæði

Það er full ástæða til að flagga í hálfa stöng við bæjarskrifstofur Kópavogs.  Ég segi að þetta sé fyrst og fremst þeirri ládeyðu sem einkenndi þann meirihluta sem starfaði á árunum 2014-2020.  Engin framtíðarsýn, engvar lausnir, engvir leikskólar byggðir. Ekkert að frétta.  Það tekur sinn tíma að breyta kúrs á skipi sem flotið hefur sofandi að feigðarósi í 4 ár.  Það er því kominn tími til að bretta upp ermar.  Auglýsa Glaðheima, ná samningum við dánarbúið og ríkið um það land sem við eigum fyrir byggingar í heimalandi Kópavogs.  Árangur áfram ekkert stopp.

En nú er bleik brugðið það er hægt að fá úthlutað lóðum í Reykjavík!  Engin í Kópavogi.

mánudagur, 28. desember 2020

Jólasaga

Árið er 1887 og allri jólasveinar á Íslandi eru boðaðir á landsþing jólasveina sem haldið er á þingstaðnum gamla í Kópavogi. En sagt er frá jólasveinum í fræðingrein í morgunblaðinu um miðja síðusu öld. “Þeim er svo lýst, að þeir séu að eðlisfari líkastir púkum, og lifi mest á blótsyrðum manna og óvönduðum munnsöfnuði, þeir séu rógsamir og rángjarnir og steli einkum börnum. “


Mikil tími fór í á þessu þingi að ræða ímyndarmál sem allir voru sammála um að væru ekki nógu góð.  Það yrði að bæta klæðarburð, útlit, eðlisfar og síðast en ekki síst yrði að koma inn með ákvena góðmennsku. 

Því var ákveðið að efna til leika þar sem þessir “hæfileikar” mundu skera út um hvaða jólasveinar mundu taka að sér.  Þessir leikar minna svolítið á vinsæla þætti og bíómynd og er talið að bæði Survivor og Hungurleikarnir eigi ættir að rekja til þessara jólasveinaleika á Íslandi sem hófust haustið 1887. skildu þessir leikar standa yfir í eitt ár og var keppt í öllum landshlutum.

Formaður dómnefndar var Leppalúði eignmaður Grýlu og aðrir í dómnefnd voru Giljagaur en hann var bróðir Grýlu og Stekkjastaur sem hafði verið í gengi með Grýlu í gamla daga

Eitt af því sem talið er hafa ráðið úrslitum er sundkeppnin í Sléttuhlíðarvatni og Sæluvikan á Sauðárkróki í maí 1888. En ekki verður farið í það nánar hér.   Ákveðið var að þeir sem mundu ná 13 fyrstu sætunum mundu skipa þetta úrvalslið.  Sem mundi fara í að bæta ímyndina og í stað þess að hræða börn átti að gleða börn.

Ástæða fyrir því að það voru valdir 13 er sú að einhver óvinur jólasveinanna hafði náð að koma á flot vísu sem hafði náð sér á strik meðal almennings en hún hljómar svona:

Löngum leiðir beinar
labba jólasveinar
þessa þjóðir hreinar
þrettán saman meinar
oft sér inni leyna
illir mjög við smábörnin

Miklar umræður voru strax í byrjun um hvort leyfa ætti þekktustu kvennkyns jólasveinum að taka þátt en þær eru 4 og heita Redda, Sledda, Flotsokkka og Flotnös.  Það fór svo að það var ákveðið að leyfa þeim að keppa og ástæðan er talin vera sú að Redda var búinn að útvega öllum jólasveinum nýja ullarvettlinga með tveimur þumlum sem var það heitasta á markaðinum í þá daga.  Eins var alltaf hægt að treysta á Reddu þegar það þurfti að bjarga einhverju.  Þaðan er máltækið þetta reddast komið.  En það er önnur saga.

Öllum á óvart vann Redda þetta og Flotsokka var í öðru sæti.  En talið er að sveitungar Reddu.  Þeir fjórmenningar Tífall, Tútur, Litli-Pungur og Bjálfinn sjálfur hafi verið með þeim í bandalagi í fyrstu en þeir eru þekktir meðal Jólasveina fyrir gríðarlegan áhuga og stuðning við jafnrétti.

En 20 fyrstu í leikunum voru eftirfarandi jóalsveinar 1. Redda, 2. Flotsokka, 3. Stúfur 4. Þvörusleikir, 5. Pottasleikir 6. Askasleikir, 7. Hurðaskellir, 8. Skyrgámur, 9. Bjúgnakrækir, 10. Gluggagægir, 11. Gáttaþefur, 12.Ketkrókur, 13. Kertasníkir 14. Baggalútur, 15.Dúðadurtur, 16 Þvengjaleysir, 17. Flautaþyrill, 18.Faldafeykir, 19-20 Sledda og Flotnös urð jafnar en þær höfðu báðar meiðst illa í slagmálum í Breiðdal við þá Flotsleiki, Gangagægir, Svartaljót og Svellabrjót.

Þegar þetta er ljóst haustið 1888 eru jólasveinar alveg snælduóðir og kalla hvorn annan öllum illum nöfnum er gengið til atkvæða en alls höfðu rúmlega 70 jólasveinar atkvæðisrétt engu að síður var þessu vísað til dómnefndar eftir slagsmál í margar vikur sem ekki var til að bæta ímyndina.

Dómnefndinn ákvað að þeirr Stekkjastaur og Giljagaur mundu víkja úr dómnefnd og taka sæti þeirra Reddu og Flotsokku.  Þrátt fyrir að þeir væru ekki jólasveinar.  En Baggalútur og Dúðadurtur sem lentu í 14 og 15 sæti vildu að þeir yrðu færðir upp í úrvalsdeild en það var ekki gert og stofnuðu þeir þá hljómsveit.  En það er önnur saga.

Þetta varð því niðurstaðan:
1. Stekkjastaur, 2. Giljagaur, 3. Stúfur 4. Þvörusleikir, 5. Pottasleikir 6. Askasleikir, 7. Hurðaskellir, 8. Skyrgámur, 9. Bjúgnakrækir, 10. Gluggagægir, 11. Gáttaþefur, 12.Ketkrókur, 13. Kertasníkir

Fljótlega upp úr aldarmótum 1900 dóu bæði Stekkjastaur og Giljagaur en þær Redda og Flotsokka dulbjuggust og hafa uppfrá því komið með gerviskegg til byggða og dulbúið sig sem Stekkjastaur og Giljagaur.  En talið er nú að á næsta ári munu þær fella skeggið og fara til fjalla sem þær sjálfar og um næstu jól mun Redda koma fyrst til byggða sem hún sjálf.  En þá eru ákkúrat liðinn 130 ár síðan hún vann þessa keppni. #$önnsaga

Heimildir:
1. https://is.wikipedia.org/wiki/%C3%8Dslensku_j%C3%B3lasveinarnir
2. http://www.arnastofnun.is/page/arnastofnun_nafn_nefnir_AB
3. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3286538




(Sett á facebook jólin 2017)

laugardagur, 9. desember 2017

Þarf að gera umtalsvert betur í húsnæðis- og lóðamálum í Kópavogi

Nú þegar sér fyrir endann á kjörtímabilinu er augljóst að þessum meirihluta er ekki treystandi í húsnæðis- eða lóðamálum.

Besta dæmið um það er að nú eru liðin rúm tvö ár síðan „stefnumarkandi leiðir íhúsnæðismálum í Kópavogi“ voru kynntar á blaðamannafundi, en þeirri skýrslu var stungið undir stól. Fékk aðeins umfjöllun þegar lóðin undir áhaldahúsinu fór í úthlutun en það náði ekki lengra en í smá umræðu.

Annað dæmi er Vatnsendahlíð en þar var tilbúið skipulag sem var síðan kært og fellt úr gildi í byrjun árs 2016. Ekkert hefur verið unnið meira með það, sem er hreinlega til skammar því eins og allir vita tekur töluverðan tíma að fara í gegnum ferlið sem liggur að tilbúnu skipulagi.

Þriðja dæmið er reiturinn við Sorpu, en þar er landsvæði sem Kópavogsbær á ekki samkvæmd dómi hæstaréttar. Það hefur ekkert verið gert í því máli og því stungið undir stól


Fjórða dæmið er Vatnsendahæðin. Það stóð til boða að kaupa það landsvæði á góðu verði ef að líkum lætur, því að Garðabær keypti Vífilstaðalandið þegar það stóð til boða. Þáverandi fjármálaráðherra nefndi að Kópavogsbæ stæði til boða að kaupa Vatnsendahæð á sömu kjörum. Hægagangurinn var alger og kom í veg fyrir að hægt væri að ganga frá því áður en sú ríkisstjórn féll.

Fimmta dæmið er Glaðheimasvæðið. Hluti svæðisins var tilbúið til úthlutunar fyrir kosningar 2014,
en á seinni hluta svæðisins átti eftir að ganga frá samningum við eigendur tveggja hesthúsa en skipulag tilbúið. Ennþá hefur ekki verið gengið til samninga við eigendur hesthúsanna þar. Það er ljóst að aðgerðarleysi er besta lausnin hjá núverandi meirihluta.

Sjötta dæmið er viðhald á mannvirkjum bæjarins. Stóra málið er auðvitað Kársnesskóli, þar var löngu komin þörf á kröftugar aðgerðir en ekkert var að gert og nú hefur verið ákveðið að byggja nýjan skóla. Bæjarskrifstofurnar, sem svo nauðsynlegt var að rýma, eru nú notaðar undir elstu árgangana í skólanum og enn hefur ekki neinum orðið meint af. Vinnuskólinn hefur haft starfsstöð í Kópavogsdalnum sem hefur verið lokað og sett í gáma.

Á þessum rúmum 3 árum sem þessi meirihluti hefur verið við völd hefur verið úthlutað lóðum fyrir um 500 íbúðir og annað í Kópavogi, fyrir það hafa komið um 3 milljarðar króna í kassann. Ekki hefur verið malbikuð ein ný íbúðagata fyrir þessar íbúðir. Flestar götur voru tilbúnar, annað hefur þessi meirihluti ekki komið í verk. Þannig að fyrirséð er fjárstreymi úr bæjarsjóði til að ljúka við götu, göngu- og hjólastíga og opin svæði á þessum stöðum þar sem lóðum hefur verið úthlutað.
Með fullkomnu aðgerðarleysi er þessum útgjöldum velt yfir til framtíðar bæjarbúa og bæjarstjórna að ráða fram úr. Síðan er tönnlast á að allt sé svo faglegt og vel unnið. Það er einfaldlega treyst á að flestir Kópavogsbúar séu eins og minnihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs, fari í klappliðið og kíki ekki undir stólinn eða úti í horn. En fari allra síst að horfa til framtíðar í húsnæðis- og lóðamálum. Það er ekki að gerast, því það eru íbúar í bænum sem telja niður dagana til kosninga sem verða eftir 174 daga.

(grein í Kópavogsblaðinu 2, desember 2017)

sunnudagur, 3. september 2017

Kúnstin að þola góðærið

            Það hefur gengið á ýmsu þetta kjörtímabil hjá núverandi bæjarstjórn. Bæjarstjórn hefur ýmist valið eða þurft að loka stofnunum í bænum vegna skorts á viðhaldi. Það hefði þótt saga til næsta bæjar fyrr á öldinni ef deild á leikskóla hefði verið færð í annað húsnæði í heilan mánuð, hætt að nota húsnæði vinnuskólans og starfsemin flutt í gáma, loka hluta Kársnesskóla og færa starfsemina. Rúsínan í pylsuendanum er þó að bæjarskrifstofurnar, sem voru í það slæmu ástandi að það þurfti að bregðast við strax, voru flutt í nýtt húsnæði vegna heilsu starfsfólksins, en húsnæðið er núna nógu gott til að hýsa skólabörnin okkar.  Það hefði þótt ástæða fyrir nokkrum árum að taka þetta virkilega alvarlega og framkvæmdasamir stjórnmálamenn hefðu tekið fast á málum.
            Það sem hefur þó einkennt þennan meirihluta framar öllu er viljaleysi til að taka á málum.  Enn hefur ekkert haggast í Vatnsenda og er það fyrst og fremst viljaleysi meirihlutans.  Enn hefur ekkert gerst varðandi hesthúsin á Glaðheimasvæðinu. Enn hefur ekkert gerst varðandi Fífuhvammslandið rétt við móttökustöð Sorpu. Enn er verið að beita fornaldaraðferðum varðandi hirðingu á plasti frá bæjarbúum og svo mætti lengi telja.  Það er eins og meirihlutinn átti sig ekki á að málin hverfa ekki þó þeim sé sópað út í horn eða undir teppi. Það er ekki hægt að ætlast til að þessi meirihlutinn geri kraftaverk á þeim 287 dögum sem eru til kosninga, heldur bara vona að hann komi skammlaust frá þessum tíma. Það er nefnilega ekki minni kúnst að stjórna í góðæri en þegar þrengir að og það er ekki hægt að fara í gæluverkefni á meðan þörfin fyrir viðhald og jafnvel óvinsælar ákvarðanir sem þarf að taka bíða ekki endalaust.Nýverið hitti ég bæjarfulltrúa sem fannst að ég væri helst til neikvæður í þeirra garð.  Það er ekki neikvæðni að benda á það sem ekki er gert og það sem betur mætt fara.  Fram til þessa hafa 11 manns verið í klappliði bæjarstjórnar.  Þó að vísbendingar séu um að minnihlutinn sé að átta sig á að það borgar sig ekki að fara niður með sökkvandi skipi.  Það er líka ástæða til að ætla að þetta fólk geti haldið eigin verkum hátt á lofti.  Það er ekki neitt sem ég hef löngun til að gera.  Enda ekki áhugaverð afrekaskrá. 

(grein í Kópavogsblaðinu 26 ágúst 2017)

sunnudagur, 20. ágúst 2017

Friðurinn út í bæjarstjórn Kópavogs

Það er alltaf fróðlegt að lesa fundargerðir bæjarstjórnar og bæjarráðs Kópavogs.  Nú er ljóst að bæjarfulltrúar eru farnir að átta sig á að það styttist hratt í kosningar og það speglast í fundargerðum. Meirihlutinn farinn að reyna fá stig fyrir viðleitnin og lofa fran á næsta kjörtímabil sem munu kosta á næstu árum bæjarsjóð mikla fjármuni.  En undanfarið hefur þessum meirhluti tekist einstaklega illa upp með að reka bæjarsjóð og verður fróðlegt að sjá ársreikning fyrir árið 2017.  Það er fyrirséð að bæjarsjóður mun auka skuldahlutfall sit aftur og nú er lítið inn á bók.  Ekki eins og var þegar þessi meirihluti tók við og yfir 500 íbúðir voru til á lager hjá Kópavogsbæ.  En núna er engin íbúð til úthlutunar (mögulega er að koma inn eitt fjölbýlsihús með 43 íbúðum).  Því eins og ágætur sjálfstæðismaður sagði svo vel "það er kúnst að þola góðæri"  og þegar bæjarstjórn hefði átt að vera leggja áherslu á viðhald skóla og leikskóla var það ekki gert heldur verið að setja upp rólur og leiktæki sem vissulega er skemmtilegt.  En það þarf að forgangsraða og það hefur þessi bæjarstjórn sýnt fram á að hún er óhæf í gera.  Því það hefur legið lengi fyrir að húsnæðið er að eldast og þörf er á auknu viðhaldi víða í bænum. En hér er dæmi um fundargerð sem meirhlutinn er að fara með í prófkjör og kosningar.   

Tveimur vikum seinna vaknar minnihlutinn og hefur nú líka áttað sig á að það er að styttast í kosningar og nú er byrjað að bóka sem aldrei fyrr.  Hér er dæmi um fundargerð þar sem minnihlutinn er voða duglegur að bóka.  Það er ekki nokkur afsökun að það séu margir nýliðar í hópi þeirra bæjarfulltrúa sem eru í minnihlutanum.  Það á við um meirihlutann líka.  Það þarf að sinni því starfi að vera bæjarfulltrúi það er ekki bara flottur titill og skraut sem menn bera á tyllidögum.  Kópavogur er stórt og kraftmikið bæjarfélag sem á það skilið að því sé sinnt af ástríðu og kappi.  Nýverið hitti ég bæjarfulltrúa sem fannst að ég væri helst til neikvæður í þeirra garð.  Það er ekki neikvæðni að benda á það sem ekki er gert og það sem betur mætt fara.  Fram til þessa hafa 11 manns verið í klappliði bæjarstjórnar.  Þó að vísbendingar séu um að minnihlutinn sé að átta sig á að það borgar sig ekki að fara niður með sökkvandi skipi.  Það er líka ástæða til að ætla að þetta fólk geti haldið eigin verkum hátt á lofti.  Það er ekki neitt sem ég hef löngun til að gera.  Enda ekki áhugaverð afrekaskrá. 

Að lokum þetta.  Hér fyrir neðan eru myndir af nýju skólastofunum í Kársnesskóla.  Það er skólasetning á þriðjudaginn og það er að hefjast kennsla á miðvikudaginn.  Nú hefði verið gott að eiga inni þá daga og vikur sem fór í að hugsa málið og komast að niðurstöðu um hvað ætti að gera.  Stundum þarf einfaldlega að vera tilbúinn til að vinna hratt og örugglega.


þriðjudagur, 18. júlí 2017

Aðkeypt lýðheilsa getur verið öflug lýðheilsa

Nú nýverið auglýsti Kópavogsbær eftir sérfræðingi til starfa hjá bænum til að sinna lýðheilsumálum.   Að mínu mati á að kaupa þessa vinnu í aðkeyptri þjónustu.  Áður en lengra er haldið vil ég þó taka skýrt fram að ég er hlyntur blönduðum búskap í þessum málum og sum þjónusta á að vera aðkeypt og í mörgum tilfellum þarf að ráða starfsfólk eins og t.d. þyrfti að gera varðandi smiði sem vinna hjá/fyrir Kópavogsbæ en það er önnu saga og ætla ég ekki að ræða það nánar hér.  En aftur að sérfræðingnum í lýðheislumálum.

Þá er þetta starf sem kostar með öllum launatengdum gjöldum og sköttum einhverstaðar á milli 10-13 miljónum á ári.  Síðan þarf skrifstofuaðstöðu í húsnæði sem nú þegar verið er að flytja inn í er sprungið. Eins þarf skrifstofubúnað og fleira sem tilheyrir.  Síðan eru
það verkefni sem tilheyra því að halda úti öflugri lýðheilsustefnu ár hvert sem gætu kostað á milli 3-5 miljónir á ári í aðkeypt námskeið, fundi og fyrirlestra bæði fyrir starfsmenn og íbúa bæjarins.  Startkostnaður með auglýsingu og ráðningarferli og því sem áður hefur verið nefnt gæti á árgrundvelli verið um 20 milljónir og síðan um 13-18 milljónir á ári eftir það.  Því að mínu mati á að gera vel í þessum málaflokki en ekki kasta til hendinni eins og verið er að gera nú á síðustu metrunum fyrir kosningar því menn vöknuðu allt í einu upp og átta sig á því að ekkert hefur verið gert í 3 ár unnið hefur verið á hraða snigilsins og nú á að fara á fullkomið fyllerí.  Því það er fyrirséð að þessi meirhluti lifir ekki af næstu kosningar.  En það er önnur saga.

 Aftur að lýðheislumálum.  Því nokkur vinna var lögð í að móta Lýðheilsustefnu Kópavogs en nú skal allt gert 2007 stæl og í stað þess að fara í þarfagreiningu og hugarflæði hvernig best væri að stíga næstu skref þá var fúskað og plástrað til þess að bjarga sér fram að 26. maí 2018.  Að mínu mati hefði verið mun gáfulegra að kaupa að þjónustu keyra í gang fyrstu skref með fagaðilum sem t.d. í fyrstu gætu keyrt á punktum 1 og 4 en ég hefði gert það og átt afgang.

sunnudagur, 7. maí 2017

“Fjárkúgun” á öldruðum í skjóli bæjarstjórnar

Í mars og apríl var töluvert fjallað um málefni íbúa í Boðaþingi. Þeir fóru í mál við Naustavör, sem er dótturfélag Sjómannadagsráð sem á og rekur Hrafnistu í Boðaþingi. Það er með ólíkindum að fylgjast með þeim fréttum sem þaðan berast. Efir að málaferlum lauk, með sigri íbúa, hefur íbúum verið sagt upp samningum og kostnaður íbúanna einfaldlega hækkaður.
„Þetta gera menn ekki“ sagði skáldið eitt sinn og ætla ég að gera þau orð að mínum. Það er nefnilega ekki hlaupið að því að finna sér nýtt leiguhúsnæði eins og markaðurinn er í dag. Þannig að íbúar hafa því lítið val, heldur en að borga enn hærri leigu. Leigan er nú þegar töluvert hærri en á almennum markaði, auk þess sem greiða þarf sérstaklega fyrir hina ýmsu þjónustu.
Þessi framkoma er með þvílíkum eindæmum að það full ástæða er fyrir bæjaryfirvöld að skoða í hvaða farvegi þessi mál eru og einnig hvort að þessi framkoma sé í sama anda í Hrafnistu. Kópavogsbær er með samning við Hrafnistu varðandi ýmsa þjónustu sem veitt er í félagsmiðstöðinni í Boðaþingi. Þetta eru íbúar í bænum sem eru að sækja í þjónustu sem byggð var á þessum stað í samvinnu við Kópavogsbæ. Þess vegna verður bæjarstjórn að skoða hvað sé þarna að eiga sér stað.
Ekki má sitja með hendur í skauti og bíða efir að íbúar séu líkt og neyddir til að reiða fram meira fé, eða eins og einn íbúinn kallaði það í viðtali við kvennabladid.is „þetta er ekkert annað en fjárkúgun“  Við þessu á Kópavogsbær að bregðast og tryggja að öldruðum sé búið áhyggjulaust ævikvöld í Boðaþingi.

föstudagur, 14. apríl 2017

Blandaður búskapur

Eitt af því sem ég mundi vilja sjá Kópavogsbæ gera meira af er að skoða í hvert skipt mjög ítarlega hvort það gæti verið möguleiki á að kaupa þjónustu utanfrá áður en það auglýsir starf eða hvort það er möguleiki á að hagræða innan sveitarfélagsins.  Því oft er kostur að kaupa þjónustu í þau verkefni sem þarf að gera hverju sinni og það er ekki allt verið að framkvæma þjónustu og starfsánægju könnun.  Það er ekki alltaf verið að gera úttektir á einstökum verkefnum. Þetta starf verkefnastjóra er í mínum huga tilvalið til að kaupa tímabundna þjónustu til og þá er hægt að nota fjármagnið betur.  T.d.ef það þyrfti að auka tímabundið við sálfræðiþjónustu á sviðinu þá væri hægt að kaupa hana líka.  Núverandi meirihluti hefur verið svoldið í því að bæta við báknið.  Stundum án nokkurrar skoðunnar heldur aðeins gert vegna þess að það var í stefnuskrá framboðsins.  Það þarf að vera meiri fagmennska og minna fúsk hjá bæjarstjórninni í þessu en það hefur ekki batnað við komu Bjartar Framtíðar í bæjarstjórn þrátt fyrir boðskapinn.  

sunnudagur, 19. febrúar 2017

Bæjarstjórn sem tók jóðsótt í húsnæðismálum

Í allri þeirri umræðu sem á sér stað í þjóðfélaginu um hátt húsnæðisverð og lóðaskort er viðbúið að maður líti sér nærri og skoði hvað Kópavogur hefur verið að gera.  Það kannast margir við máltækið fjallið tók jóðsótt og það fæddist lítil mús.  Í Kópavogi má segja að fjallið hafi verið með jóðsótt í tæp þrjú ár en ekki enn hafi fæðst hús.  Í bæjarstjórn er húsfyllir af hæfileikaríkum einstaklingum með mörg orð og falleg, hver og einn gæti unnið ræðukeppni Morfís.  En það dugar einfaldlega ekki að sitja og ræða málin og setja fram fallegar hugmyndir en koma svo engu í verk.

Nú er svo komið að lóðaskorturinn er alger í Kópavogi.  Samkvæmt heimasíðu bæjarins eru einungis 18 lausar lóðir til umsóknar í öllum Kópavogi, þar af eru þrjár hesthúsalóðir, ein lóð undir atvinnustarfsemi og 14 einbýlishúsalóðir.  Aldrei á þessari öld hafa verið eins fáar lausar lóðir í Kópavogi og á sama tíma rýkur íbúðaverð upp og unga fólkið á einskis annars kosts en að leita í önnur bæjarfélög.  Það segir sig sjálft að þegar fermetraverð í íbúð slagar hátt í 600.000 þúsund krónur þá getur verið góður kostur fyrir ungt fólk að taka höndum saman og byggja par- eða raðhús.  Því ekki ráða allir við að fara beint í að byggja einbýlishús.  Unga fólkið hefur ekki tækifæri til að byggja í Kópavogi, þó svo að nóg sé til af landi, heldur þarf það að leita annað og er það á ábyrgð núverandi meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs og engra annarra.

Þann 25. janúar s.l. voru  3 ár síðan bæjarstjórinn í Kópavogi skrifaði margra orða grein á bls. 27 í Morgunblaðinu.  Þar skrifar hann um hagsæld Kópavogs og ábyrga húsnæðisstefnu, sem sýnir að hann þekkir vel til.  Við þessum fróðleik tók hin nýkjörna velmælandi bæjarstjórn,  sem kosin var í maí 2014 og settist niður fljótlega eftir kosningar, ræddi málin og skipaði nefnd um húsnæðismál.   Nefndin setti svo fram fullt af flottum hugmyndum en engar raunverulegar aðgerðir hafa fylgt.  Ein hugmyndin breytti Kópavogsbæ í lánastofnun sem lánar með engum vöxtum til sérvalinna Kópavogsbúa, sem reyndar stenst ekki lög en er fallegt á pappír.  Ef fram fer sem horfir verður þetta fyrsta bæjarstjórnin í sögu Kópavogs sem tekst að gera akkúrat ekkert í húsnæðismálum sem stenst lög.  Það er afrek.

En hvað er til ráða?  Það er t.d. hægt að brjóta land sem við þegar eigum og er þegar skipulagt uppi í Vatnsenda og úthluta undir par-og raðhús, fjórbýlishús, fjölbýlishús, blokkir og einbýlishús.  Jafnvel væri hægt að úthluta lóðum  til leigufélaga sem, með samkomulagi við bæinn, skuldbinda sig til að miða leiguverð við ákveðna upphæð á fermetra.  Sama hátt gæti Kópavogsbær haft við önnur félög sem myndu skuldbinda sig til að selja á ákveðnu fermetraverði beint til einstaklinga.  Eins gæti Kópavogur haft frumkvæði að því að stofna félag til að byggja, selja eða leigja íbúðir.  Félag sem ekki væri rekið í hagnaðarskyni.  Hægt væri að gera það og fleira  t.d. í samvinnu við lífeyrissjóði.  Það er fullt af lausnum.  Nú er nóg komið af því að „taka samtalið“ og kominn tími á aðgerðir.


grein í Kópavogsblaðið sem kom út 16. febrúar 2017


fimmtudagur, 28. janúar 2016

Ekkert Framkvæmdaráð sama sem ekkert eftirlit

Eitt af því fyrsta sem núverandi meirihluti í Kópavogi gerði var að leggja niður Framkvæmdaráð.  Það þótti mér mjög sérstök ákvörðun og nær hefði verið t.d. að fella hafnarstjórn þar inn ef hugsunin hefur verið að spara í nefndarkerfinu og gera frekari breytingar sem ég ætla ekki að ræða hér.  Eitt af verkefnum Framkvæmdaráðs var að fá inn á borð til sín stöðu framkvænda og kalla eftir upplýsingu varðandi áform um uppbyggingu.

Greinlegt að búið er að vinna í lóð án þess að hægt sé að finna á vef
 bæjarins að nokkur umsókn hafi verið lögð inn til Kópavogsbæjar.
Þetta hefur ekki verið gert í þann tíma sem núverandi meirihluti hefur verið að störfum.  Að minnstakosti hef ég ekki fundið það í fundargerðum.

Nú er svo komið að það eru enn einhverjar lóðir undir húsnæði á lausu í Kópavogi og er hægt að finna þær á heimasíðu Kópavogsbæjar.  Það getur verið að það sé eitthvað síðan þessar upplýsingar voru uppfærðar án þess að ég þori að fullyrða það. Leiðinlegt er að það vantar auðvita í flóruna fjölbreyttara húsnæði. Ekki bara  einbýlishús. Þetta eru þó nánast einungis stórar einbýlishúsalóðir sem núna standa til boða.

En það er þó gott er nægt framboð af þeim. Þó svo að margar hafa þann möguleika að bærinn breyti skipulagi og þétti byggð og bjóði upp á fjölbreyttara húsnæði í góðum hverfum. En það er önnur saga.  Það sem er ekki eins jákvætt að það er verið að reyna selja eina eina flottustu lóð í Kópavogi sem var úthluta fyrir nokkrum árum.  En það er hægt að finna þessa lóð á fasteignavef inn á visir.is  Ef að Framkvæmdaráð væri starfandi væri löngu búið að óska eftir skýringum á þessu og jafnframt óska eftir úskýringum á þessum grjóthleðslum og hvað hefur verið gert á lóðinni og hvort áform séu uppi um að byggja.  Þessi lóð hefur verið of lengi til sölu til þess að gera ekki neitt.  Það eru ekki nema rúm 2 ár í kosningar.  Upp á tærnar!

sunnudagur, 30. ágúst 2015

Ekki gera ekki neitt í Kópavogi!


Stjórnarformaður Bjartar framtíðar Margrét Marteinsdóttir lét hafa eftir sér á vísir.is að það væri svo mikil friður í Kópavogi núna eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar og Kópavogsbúar væru svo ánægðir ef þeir yrðu spurðir.  

Það er greinilegt að hún er hætt á fréttastofu RÚV og ekki lengur á Kópavogsvaktinni.  Því þetta er alrangt. Vissulega hefur nánast ekkert verið að gerast. En ég minni á að það er tvennt sem þessi meirihluti sem Björt framtíð situr í Kópvogi hefur reynt að gera og þá hefur ekki ríkt mikill friður.  Það er fluttningur á bæjarskrifstofunni  og skipulagsbreytingar í Furugrund 3.  Þar sem íbúar er mjög ósáttir.  Þá er brugðið til þess að gera það sem Björt framtíð gerir best.  Að gera ekki neitt!


Og það eru í fleiri málum sem Björt framtíð hefur ásamt Sjálfstæðisflokknum ákveðið að gera ekki neitt í Kópavogi.

Glaðheimar -Hesthús Enn hefur ekki verið samið við alla eigendur hesthúsa í Glaðaheimum.  Því standa en 3 hesthús í Glaðheimum.  Vandamálið hverfur ekki þó að það sé ekki gengið í verkið.


Sorpa - Endurvinnslustöðin Dalvegi
Eftir að hafa verið með eina bestu aðkomu að endurvinnslustöð á höfuðborgarsvæðinu í nokkra dag. Þá var ákveðið að gera ekkert í málefnum er varðar eignarhald á landinu og minka frekar stöðina um rúmlega 400m2. Vandamálið hverfur ekki þó að það sé ekki gengið í verkið.

 Þríhnjúkar
Eitt alherjar grín að verða. Aðilar koma að máli við bæinn og fá 10 milljónir.  Þegar peningurinn er búinn.  Stofna sömu aðilar annað fyrirtæki og mala gull á ferðaþjónustu, Jafnframt er gengið á gæði sem bærinn býr yfir og gróflega á landið.  Enn er ekkert farið að gera er snýr að framtíðar hugmyndum. Vatnið verður að njóta vafans! Vandamálið hverfur ekki þó að það sé ekki gengið í verkið.

 Tennishöllinn
Sótt var um leyfi til að byggja við Tennishöllina fyrir rétt um ári síðan.  Björt framtíð tók málið í gíslingu.  Það væri ráð að leyfa lýðræðinu að virka og taka málið fyrir í bæjarstjórn Kópavogs. Hreint með ólíkindum að stjórnsýslan sé misnotuð svona. Vandamálið hverfur ekki þó að það sé ekki gengið í verkið.

Kársnes
Eftir að eigendum var gefið leyfi til að rífa þær byggingar sem stóðu á reitnum.  Er kominn tími til að fara taka á hlutum.  Kópavogsbær hefur tapað milljónum á því að þetta landsvæði stendur án bygginga, Vandamálið hverfur ekki þó að það sé ekki gengið í verkið.

Vatnsendi
Það mál hverfur ekki þó að það sé ekki rætt.  Björt framtíð verður að sína að það sé flokkur sem vil láta taka mark á sér.  Þó ekki væri nema að bærinn fari að ræða við þá aðila sem hlut eiga að málum. Vandamálið hverfur ekki þó að það sé ekki gengið í verkið. 


Það er afskaplega auðvelt að sitja í bæjarstjórn og gera ekki neitt.  Það er óhætt að segja að menn geta valið um hvort þetta á að vera þægileg innivinna.  Eða að kjörnir fulltrúar sinni þeim störfum sem blasa við og ganga í málin,  Ég hef sagt það áður og segi það enn einu sinni. Vandamálið hverfur ekki þó að það sé ekki gengið í verkið!